Thunderbird 3.1
Thunderbird 3.1 er núna með flipa, betri leit, og safnvistun á pósti.
Thunderbird 3.1 er núna með flipa, betri leit, og safnvistun á pósti.
Það er auðvelt að uppfæra í Thunderbird 3.1 frá eldri útgáfu af Thunderbird og öðrum póstforritum eins og Outlook, Outlook Express, eða Windows Mail.
Nýja flutningshjálpin okkar getur hjálpað þér að setja upp Thunderbird eins og þú vilt. Innflutningsaðgerðirnar hjálpa þér að flytja inn tölvupóst, nafnaskrá, og stillingar úr eldri póstforritum yfir í Thunderbird 3.1
Ef þú dýrkar flipana í Firefox, þá áttu eftir að elska póstflipana. Thunderbird 3.1 póstflipar gera þér kleyft að hlaða inn pósti í mismunandi flipa þannig að auðveldara sé að skipta á milli þeirra.
Leitarniðurstöður opnast líka í nýjum flipa. Ný tól eins og tímalínan og önnur síutól gera þér kleyft að finna nákvæmlega póstinn sem þú varst að leita að, hvort sem hann er frá því í gær, seinasta mánuði, eða fyrir ári síðan.
Þú getur sérsniðið Thunderbird hvernig sem þú vilt, hvort sem það er til að verða afkastameiri eða gera Thunderbird skemmtilegri. Þú getur valið úr hundruð viðbóta eins og Lightning dagatali til að halda utan um áminningar eða þemu til að breyta útliti Thunderbird.
Þú getur fundið og sett inn nýjar viðbætur frá viðbótarglugganum í verkfæravalmyndinni.
Áður en hjálparglugginn fyrir nýja reikninga varð til, þurftirðu að vita allt um IMAP, SMTP og SSL/TLS stillingarnar þínar. Núna þarftu aðeins að slá inn nafn, netfang og lykilorð og nýi hjálparglugginn finnur sjálfkrafa allar stillingar fyrir tölvupóstaðganginn.
Ef ekki finnast upplýsingar fyrir tölvupóstaðganginn, getur þú hjálpað til og sent þínar stillingar inn þannig að aðrir notendur sem eru með samskonar tölvupóstaðgang geti haft gagn að upplýsingunum.